Sunday, December 23, 2007

Gleðileg Jól

Kæra fjölskylda og vinir,
Gleðileg Jól og farsælt komandi ár!

Ég er búin að leggja mig fram við að gera heimilið jólalegt og huggulegt og er ég bara nokkuð ánægð með árangurinn. Hefði þó viljað vera búin að baka meira og þrífa betur ýmis smáatriði, eins og skápa og skúffur. En maður verður líka aðeins að slappa af.
Var að hlusta á skemmtilegan jóladisk með 3 á palli og svo hlusta ég líka á jólakveðjurnar á rás 1.
Vil reyna að halda í Íslensku jólahefðirnar því þær eru svo sérstakar.

Hafiði það öll sem best!
Kærar kveðjur,
Kristín Hildur

2 comments:

Anonymous said...

Takk, sömuleiðis:)

Anonymous said...

Ja, Gledilegt nytt ar og takk fyrir godar heimsokn og samveru arid 2007.
Vona ad vid sjaumst sem fyrst a nyja arinu ;o)