Friday, February 15, 2008

Heimsókn

Jei, það er kominn föstudagur og Þórhildur systir og Egill koma í heimsókn á morgun. Hef reyndar aldrei áður fengið jafn snubbótta heimsókn, en þau stoppa bara í 24 tíma...En ég er nú samt mjög ánægð með að þau skuli kíkja við. Er að vona að það verði sól og blíða svo við getum dúkað upp borðið í garðinum og borðað hádegismatinn úti.

Ætla að athuga hvernig gengur að setja inn video, hér að neðan er eitt stutt af Fjólu.

2 comments:

Anonymous said...

Skemmtilegt að sjá hreyfimyndir! Mundu bara að snúa myndavélinni:) Þau eru að líkjast systkynin, mér fannst þetta vera óskar!!
Ég hlakka til að sjá ykkur um páskana, ég er á fullu að taka til ... skúra skrúbba bóna... og mála! Þetta verður allt önnur íbúð þegar þið komið næst:)

Helga F said...

Þau eru algjör krútt, þau systkinin! :) Og Fjóla aldeilis orðin hárprúð!! :)
kveðja,
Helga F