Monday, February 25, 2008

33 ára

Jæja, þá er ég orðin einu árinu eldri. Takk öll fyrir afmæliskveðjurnar, sms, tölvupóstar, facebook kort osfrv. Gott að vera minntur á að maður eigi góða vini og fjölskyldu sem muna eftir manni.
Afmælisdagurinn var bara notarlegur, fór með brownies í vinnunna öllum til mikillar ánægju, varð nánast að geyma boxið eins og faldan fjársjóð því annars kom fólkið streymandi að úr öllum áttum til að ná sér í meira.
Við fórum út að borða í hádeginu á fínan veitingastað en um kvöldið fór ég nú bara snemma að sofa, því Salvador fór í steggja partý fyrir vin sinn sem er að fara gifta sig um næstu helgi.
Um helgina fórum við í grillveislu, þar sem aðal atriðið er að grilla vorlauka og dýfa þeim í rosalega góða sósu. Laukarnir eru alveg rosalega góðir, alveg dún mjúkir (verður að grilla þá lengi til að þeir séu mjúkir í gegn) og svo sósan líka frábær.
Set inn myndir af því við tækifæri.
Bless í bili (mikið að gera í vinnunni núna...)

1 comment:

Anonymous said...

Helduru að litla frænka þín sé ekki farin að segja Harpa og kallar á mig endalaust enda var mikið lagt í þjálfunina hehe.